Guðmundur Óli Scheving
PEST -WEST
KILLGERM
Dagatal
september - 2010
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930
FyrriNæsti
Heimsóknir
Í dag:  15  Alls: 89931
Textabox

 

Nú hefjast pistlaskrif mín aftur á 24 stundum. Blaðinu sem er að vaxa.

Fyrsti pistill var 14.nóv 2007

ÆÆÆÆÆÆ......Blaðið er hætt......

Leitarbox

Textabox

 

Viltu eignast bókina   ! 

Upplýsingar og fróðleikur
                um
Meindýr og Varnir

Pantaðu bókina á netinu gudmuunduroli@simnet.is

31.07.2010 21:20:39 / tidarandinn

Hvað er að vera góður með sig ?

Að vera góður með sig er að vera monntinn, drjúgur með sig.

Hann er svo góður með sig að mér er bara óglatt.

Það er ekki hægt að vinna með honum hann er svo góður með sig.

Hún er svo góð með sig að hún er óþolandi
.
Að vera góður með sig er neikvæð umsögn um persónu.

Reyndu nú að vera góður með þig svo þú vekir eftirtekkt

Þú ert ekki nægilega góður með þig

Þetta finnst mér.

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.06.2010 21:59:21 / tidarandinn

Hvað er að vera vargur ?

Vargur er skaðræðisdýr, eins og tófa,veiðibjalla,lýs,hrafn...

Vargur er ofsafenginn(n) maður eða kona

Vargur er frekur/frek maður eða kona

Helvítis vargur ertu er oft sagt um fólk. Þegar frekjan er að drepa það

Hann er varg duglegur....mjög duglegur (karl og kona)

Hann er vargur oft sagt um hættulegt fólk (karl eða konu)

Varaðu þig á varginum

Æ þú ert svo mikill vargur er oft sagt um frek börn

Þetta finnst mér.



» 0 hafa sagt sína skoðun

23.05.2010 14:22:45 / tidarandinn

Hvað er að vera tækifærissinni ?

Tækifærisinni er sá sem nýtir sér einhverja hluti á kostnað annara

Tækifærisinni er sá sem hagnast á kostnað annara

Margir stjórnmálamenn eru tækifærisinnar

Stæsti stjórnmálaflokkur í  Borgarmálum í dag saman stendur af tækifærissinnum.

Að vera tækifærissinni er löstur

Útrásarvíkingarnir eru allir tækifærissinnar

Að segja eitt en gera annað er að vera tækifærissinni.

Allir sem eru siðblindir eru tækifærissinnar

Þetta finnst mér.


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.04.2010 23:24:01 / tidarandinn

Hvað er að vera heitur ?

Stundum er maður heitur út í einhvern...já bara reiður

Hann/ hún er rosalega heitur/heit er stundum sagt...já eða bara sexý..

Þetta er svo heit ást

Þau voru svo heit saman

Hann/hún eru heit á grautinn...langar í meira og meira....

Þú ert rosalega heitur/heit er oft sagt um  einhvern sem er að giska á eitthvað....
og er að nálgast rétta svarið

Að vera heitur er tekið beint úr þýðingu af enska orðinu "hot"

Andstaða þess að vera heitur er að vera kaldur..cool

Þetta finnst mér.







» 0 hafa sagt sína skoðun

14.03.2010 10:48:58 / tidarandinn

Hvað er að vera Bankastjóri ?

Bankastjóri er persóna sem stjórnar ekki sjálfum sér

Bakastjóri er persóna sem hyglar sjálfum sér fyrst

Bankastjóri er persóna sem mismunar fólki

Bankastjóri er persóna með 2 miljónir í laun á mánuði og finnst það lítið

Bankastjóri hefur haft hrikaleg áhrif á heila þjóð með gjörðum sínum

Bankastjóri kann ekki að skammast sín

Bankastjóri á volduga vini

Bankastjóri blóðbankans er öðruvísi en aðrir bankastjórar

Sumir segja að Bankastjórar séu hættulegustu menn í heimi

Bankastjóri er með starfslokasamning, kaupaukasamning, fríðindasamninga, ráningarsamning allt tryggt hæstu vísitölu eða búin til vísitala.

Bankastjóri já einmitt...

Þetta finnst mér.

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.02.2010 23:54:55 / tidarandinn

Hvað er að vera gráðugur ?

Að vera gráðugur er að vera átfrekur

Að vera gráðugur er að vera sólginn

Að vera gráðugur  er að láta stjórnast að græðgi

Þeir eru svo gráðugir að þeir hafa allt af þér

Hún er svo gráðug að hún hefur allt af þér

Það er ekki hægt treysta hunum hann er svo gráðugur

Þetta er sko gráðugur hópur

Hann étur allt hann er svo gráðugur

Passaðu þig á þessum hann er svo gráðugur

Þú ert svo gráðugur/ gráðug að þú villt gína yfir öllu

Að vera gráðugur/gráðug er neikvæð umgjörð á fólki

Það er neikvætt að vera gráðugur

Þú ert svo gráðugur að þú étur börnin út á gaddinn

Þetta finnst mér.




» 0 hafa sagt sína skoðun

10.01.2010 20:32:40 / tidarandinn

Hvað er að vera slóttugur ?

Að vera slóttugur er að vera kænn

Að vera slóttugur er að vera klókur

Að vera slóttugur er að vera slægur

Að vera slóttugur er fara frekar eftir gráa svæðinu en öðru

Varaðu þig á honum hann er slóttugi en skrattinn

Að vera slóttugur er að hafa vaðið fyrir neðan sig

Að vera slóttugur er að hafa betur í samskiptum við arða

Nú varstu ekki nógu klókur

Þú ert alltaf klókari en aðrir...

Þetta finnst mér.

....


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.12.2009 18:11:29 / tidarandinn

Hvað er að vera jólabarn ?

Að vera jólabarn er hugtak

Þú ert svo mikið jólabarn

Jesúbarnið er jólabarn

Börn sem fædd eru í jólamánuðinum eru kölluð jólabörn

Það á að gefa börnum brauð, að bíta í á jólunum....er sagt í gömlu kvæði

Sjáðu litla jólabarnið

Jólabörn setja skóinn út í glugga

Þeim sem hlakkar til jólana eru jólabörn í hjartanu

Jólin eru hátíð barnana

Þetta finnst mér.




» 0 hafa sagt sína skoðun

10.12.2009 20:14:42 / tidarandinn

Hvað er að vera Jólasveinn ?

Jólasveinn er heiti á mönnum eða vættum sem eru á ferðinni í kringum jólin

Þú ert nú meiri Jólasveinninn er sagt um menn sem ekki eru að gera hlutina rétt

Jólasveinn er  maður sem er ómerkingur

Jólasveinn er sama og flón

Jólasveinn er hugtak

Jólasveinn er vera sem maður er að leika

Jólasveinn er merki um hálfgerðan kjána

Í dag er samkomustaður Jólasveina við Austurvöll

Í gamla daga vöru börn hrædd með jólasveinum og sér í lagi mömmu þeirra Grýlu

Þú ert svo mikill jólasveinn, er oft sagt sem gæluyrði við lítil börn

Jólasveinarnir eru taldir vera 13 en mér finnst þeir vera 63

Börn elska jólasveina

Mömmur elska jólasveina

Þetta finnst mér.


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.12.2009 23:00:27 / tidarandinn

Hvað er að vera yndislegur ?

Að vera yndislegur/ yndisleg er hugtak.

Æ hann er svo yndislegur

Hún er svo yndisleg

Þetta er svo yndislegt augnablik

Það er svo margt yndislegt í fari hans/hennar

Þetta er yndislegt fólk

Þetta er svo yndislegt, dásamlegt,unaðslegt

Þú ert það yndislegasta og besta sem ég hef hitt

Orðið Yndislegt eru ástarorð ,ástarhót, gleðimerki

Þakka þér yndislega stund

Þetta finnst mér.




» 0 hafa sagt sína skoðun

10.11.2009 23:16:29 / tidarandinn

Hvað er að vera froðusnakkur ?

Froðusnakkur er maður/kona sem bara blaðrar út í eitt.

Froðusnakkur er sá/sú sem talar innantómum orðum

Við Austurvöll er vinnustaður þar sem margir froðusnakkar vinna á

Maður/kona sem ekki er tekið mark á

Voðalegt froðusnakk er í þér

Þetta er bara froðusnakk, marklaust málæði

Ég hlusta ekki á froðusnakk

Þetta finnst mér.

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.10.2009 23:26:03 / tidarandinn

Hvað er að vera aumingi ?


Að vera aumingi er neikvæð lýsing á fólki

Aumingi er sá/sú sem ekki getur gert eitthvað sem allir geta gert.

Aumigja er lýst sem ræfli.

Aumingja er lýst sem vesaling

Hann er aumingi með hor, er niðrandi merkiking um einstakling.

Aumingi er ístöðulaus einstaklingur

Oft er sagt um konur hun er drusla og aumingi

Oft er sagt hann/hún er engin aumingi

Aumingja krakkinn að vera svona ljótur

Hann/hún eru aumingjar og afturkreitsingar

Hættu þessu auminginn þinn

Þetta finnst mér.

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.10.2009 22:52:12 / tidarandinn

Hvað er að vera vonlaus ?

Að vera vonlaus er tilfinningalega niðurbrotin manneskja

Þetta er vonlaust hjá þér

Þú ert bara vonlaus

Þetta er sko ekki vonlaust ,er að vera jákvæður

Það er vonlaust að ég geti hjálpað þér

Hún / hann var vonleysið uppmálað

Það er neikvætt að vera vonlaus

Vonleysið skein úr augunum á þeim

Þetta finnst mér.







» 0 hafa sagt sína skoðun

12.09.2009 21:52:56 / tidarandinn

Hvað er að vera lausgyrtur ?

Að vera lausgyrtur er það að vera með laust belti,lausa gjörð.

Að vera lausgyrtur er að vera með undirfötin upp úr buxnastrengnum

Það er talað um að hún/hann séu lausgyrt þegar viðkomandi er aldrei með sömu manneskjunni. nema stuttantíma

Hún/hann voru svo lausgyrt á skólaárunum.

Að vera lausgyrt er að vera ótrú/r sínum maka

Hún er nú frekar lausgyrt er oftar sagt um konur

Þetta finnst mér.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.08.2009 23:41:24 / tidarandinn

Hvað er að vera kúkalabbi ?

Að vera kúkalabbi er  rustalegur maður/ kona.

Þú er meiri kúkalabbinn er neikvæð umsögn um mann/konu.

Að vera kúkalabbi er næsta stig fyrir ofan skítseyði.

Kúkalabbi er sá sem misnotar vini sína

Kúkalabbi er mannvera með rotna sál

Kúkalabbi er skítalykt

Kúkalabbi er oft uppnefni

Hann er algjör kúkalabbi sagt um óæskilega mannveru.

Kúkalabba er ekki treystandi

Þetta finnst mér.






» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 25
Myndasöfn
RSS tengill
Klukkan